dcsimg
Image of Norway spruce
Creatures » » Plants » » Gymnosperms » » Pines »

Norway Spruce

Picea abies (L.) H. Karst.

Rauðgreni ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Rauðgreni (fræðiheiti: Picea abies) er sígrænt barrtré af þallarætt. Fullvaxið tré nær 35-55 m hæð og 1-1,5 m þvermál stofns. Barrið er nálarlaga, ferkantað með frekar vandséðum varaopslínum á öllum köntum. Rauðgreni hefur mikið útbreiðslusvæði eða allt frá nyrðri heimskautsbaugi í Noregi suður til norð-austurhluta Póllands og austur til Úralfjalla, einnig vex það hátt til fjalla í Mið-Evrópu. Eins og aðrar tegundir grenis er rauðgrenið langlíft og getur náð um 1000 ára aldri.

Rauðgreni á Íslandi

Á árunum 1899 til 1907 var rauðgreni flutt inn frá Noregi og Danmörku í tilraunaskyni af Skógrækt ríkisins. Á fimmta áratug 20. aldar var það aftur flutt inn þegar skógrækt með erlendum trjám var endurvakin. Fram að miðjum áttunda áratug 20. aldar var það eitt af vinsælustu trjám til skógræktar en þá höfðu aðrar trjátegundir sýnt betri vöxt. Rauðgreni þarf skjólgóðan vaxtarstað og þrífst illa í úthafsloftslagi.

Nytjar

Rauðgreni er mikið notað í skógrækt og í framleiðslu timburs og pappírs. Það er einnig notað sem jólatré.

Tilvísanir

  1. Farjon, A. 2017. Picea abies. The IUCN Red List of Threatened Species 2017: e.T42318A71233492. https://dx.doi.org/10.2305/IUCN.UK.2017-2.RLTS.T42318A71233492.en. Downloaded on 20 February 2018.

Heimildir

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Wikilífverur eru með efni sem tengist
 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Rauðgreni: Brief Summary ( Icelandic )