dcsimg

Silfurösp ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Silfurösp, Populus alba,[1][2]er tegund af ösp. Hún vex frá Marokkó og Íberíuskaga um mið Evrópu (norður til Þýskalands og Póllands) til mið Asíu. Hún vex á rökum svæðum, oft við vötn eða ár, á svæðum með heitum sumrum og köldum til mildum vetrum.[3][4]

Lýsing

Þetta er meðalstórt tré, um 16 til 27 metra hátt (sjaldan meira), með stofn að 2metrum í þvermál og breiða ávala krónu. Börkurinn er sléttur og græn-hvítur með einkennandi dökkum, demantslaga blettum á ungum trjám, og verður svartleitur og sprunginn á eldri trjám.[4][5]

 src=
Grein
 src=
blöð
 src=
stofn


Blendingar

 src=
Alley of Grey Poplars

Silfurösp blandast við skylda tegund; blæösp Populus tremula; blendingurinn er þekktur sem gráösp (Populus × canescens), og er milli foreldranna í útliti. Flestar gráaspir í ræktun eru karlkyns, en kventré koma fyrir í náttúrinni og er stundum fjölgað.[4]

Ræktun og nytjar

 src=
Populus alba Pyramidalis

Vegna saltþols hennar er henni oft plantað til að festa sandöldur við strendur.[6] Viðurinn er mjúkur, og er notaður í sellúlósa og í ódýr box. Meirihluti ræktaðra Silfuraspa í Norður-Evrópu eru kvenkyns.[5]

Keilulaga afbrigði frá Túrkestan, Populus alba 'Pyramidalis' (Bolle's Poplar; syn. Populus bolleana) er stundum notaður í almenningsgörðum.[4]


Ytri tenglar

Tilvísanir

  1. Snið:GRIN
  2. Webb, C. J.; Sykes, W. R.; Garnock-Jones, P. J. 1988: Flora of New Zealand. Vol. IV. Naturalised Pteridophytes, Gymnosperms, Dicotyledons. 4. Christchurch, New Zealand, Botany Division, D.S.I.R.
  3. Flora Europaea: Populus alba
  4. 4,0 4,1 4,2 4,3 Rushforth, K. (1999). Trees of Britain and Europe. Collins ISBN 0-00-220013-9.
  5. 5,0 5,1 Flora of NW Europe: Populus alba
  6. Vedel, H., & Lange, J. (1960). Trees and Bushes in Wood and Hedgerow. Metheun & Co. Ltd., London.


Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Wikilífverur eru með efni sem tengist
 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Silfurösp: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Silfurösp, Populus alba,er tegund af ösp. Hún vex frá Marokkó og Íberíuskaga um mið Evrópu (norður til Þýskalands og Póllands) til mið Asíu. Hún vex á rökum svæðum, oft við vötn eða ár, á svæðum með heitum sumrum og köldum til mildum vetrum.

license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS