dcsimg

Steinbrjótsætt ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Steinbrjótsætt[1] (latína: Saxifragaceae) er ætt blómplantna. Ættin inniheldur aðallega fjölærar smávaxnar jurtir en nokkrar eru einærar eða runnar. Margar tegundir af steinbrjótsætt hafa norðlæga útbreiðslu.[2]

Einkenni

Innan steinbrjótsættar eru bæði sígrænar plöntur og sumargrænar. Yfirleitt eru laufblöðin einföld og stakstæð en geta verið samsett, gagnstæð eða skert. Sumar tegundir ættarinnar hafa blaðhvilfingu sem vax í rósettu. Stönglar sumra tegunda eru trjákenndir.[2]

Bómin hafa yfirleitt fimm bikarblöð (þó stundum fjögur) og fimm krónublöð (stundum fjögur). Yfirleitt eru að minnsta kosti tvöfalt fleiri fræflar en frævur. Blómið er ýmist undirsætið eða yfirsætið og myndar hýðisaldin með mörgum smáum fræjum.[2]

Tilvísanir

  1. Ágúst H. Bjarnason (2014). Plöntuættir. Sótt þann 21. júlí 2019.
  2. 2,0 2,1 2,2 The Seed Site (án árs). Saxifragaceae - the saxifrage family. Sótt þann 22. júlí 2019.
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Steinbrjótsætt: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Steinbrjótsætt (latína: Saxifragaceae) er ætt blómplantna. Ættin inniheldur aðallega fjölærar smávaxnar jurtir en nokkrar eru einærar eða runnar. Margar tegundir af steinbrjótsætt hafa norðlæga útbreiðslu.

license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS