dcsimg

Steinbítur ( Islandês )

fornecido por wikipedia IS

Steinbítur (fræðiheiti: Anarhichas lupus) er fiskur sem lifir í sjó um allt Norður-Atlantshafið, bæði að austan og vestan. Hann er sívalur og aflangur og hreistrið er smátt og inngróið sem gerir hann sleipan. Einn bakuggi liggur eftir endilöngum hryggnum og sömuleiðis einn langur gotraufaruggi frá gotraufinni að sporði að neðan. Eyruggarnir eru stórir og hringlaga. Bakugginn og bakið eru blágrá að lit með dökkum þverröndum, en kviðurinn er ljósari. Í bæði efri og neðri góm er steinbítur með sterkar vígtennur til að bryðja skeljar skeldýra og krabbadýra sem hann nærist á. Hann missir þessar tennur um hrygningartímann í október-nóvember og sveltur þá þar til nýjar tennur vaxa.

Hann verður yfirleitt um 80 cm langur, en getur orðið allt að 125 cm. Hann heldur sig á leir- eða sandbotni á 20-300 metra dýpi.

Steinbítur er langmest veiddur á línu, en kemur einnig í botnvörpu og dragnót. Hann er vinsæll matfiskur, með þétt, hæfilega feitt, hvítt kjöt sem er auðvelt að matreiða.

 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Wikilífverur eru með efni sem tengist
licença
cc-by-sa-3.0
direitos autorais
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visite a fonte
site do parceiro
wikipedia IS