Poecilia wingei, er smávaxin fiskitegund ættuð frá Paria-skaga í Venezuela.[1] Poecilia wingei er mjög litrík tegund af gúppí, svipuð gæludýrunum í gæludýraverslunum. Tegundinni var fyrst safnað í Laguna de Patos í Venezuela af Franklyn F. Bond 1937, og endurfundin af Dr. John Endler 1975. Seinni söfnunin voru fyrstu fiskarnir til að fara í gæludýraverslun. Meir hefur verið safnað síðan, sérstaklega af Armando Pou, til að auka erfðabreytileika ræktunarstofnsins.
Samkvæmt Stan Shubel, höfundi Aquarium Care for Fancy Guppies, er þetta ekki í raun sjálfstæð tegund; að hún sé með sömu erfðir og gúppí, en sé gefið eigin nafn; Poecilia wingei, af verndunarástæðum. Hinsvegar, var 2009 grein eftir S. Schories, M. K. Meyer og M. Schartl sem sýndi fram á að Poecilia wingei væri aðskilin tegund frá P. reticulata og P. obscura.[2] 2014 gaf H. Alexander et al. út grein[3] sem dregur í efa niðurstöður S. Schories et al. um stöðu Poecilia wingei sem tegundar.[2][4]
P. wingei geta blandast við P. reticulata og P. obscura gúppía, og afkvæmin eru frjó.
Poecilia wingei, er smávaxin fiskitegund ættuð frá Paria-skaga í Venezuela. Poecilia wingei er mjög litrík tegund af gúppí, svipuð gæludýrunum í gæludýraverslunum. Tegundinni var fyrst safnað í Laguna de Patos í Venezuela af Franklyn F. Bond 1937, og endurfundin af Dr. John Endler 1975. Seinni söfnunin voru fyrstu fiskarnir til að fara í gæludýraverslun. Meir hefur verið safnað síðan, sérstaklega af Armando Pou, til að auka erfðabreytileika ræktunarstofnsins.