dcsimg
Image of hylocomium feather moss
Creatures » » Plants » » Mosses » » Hylocomiaceae »

Splendid Feather Moss

Hylocomium splendens W. P. Schimper ex B. S. G. 1852

Tildurmosi ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Tildurmosi fræðiheiti (Hylocomium splendens) er fjölær mosi sem vex á norðlægum slóðum nálægt heimskautasvæðum, oftast í þurru mólendi, kjarri og skógarbotnum. Hann er olífugrænn, gulleitur eða rauðleitur með rauðleitum stilk og greinum. Hann myndar tví- til þrífjaðraða sprota og vaxa nýir sprotar upp frá miðjum eldri sprotum. Þetta vaxtaform lætur mosann líkjast fjöðrum og gerir mosanum kleift að vaxa yfir aðra mosa og jarðveg.

Tildurmosi er notaður við blómaskreytingar og til að fóðra box til að flytja í grænmeti og ávexti. Hann var áður notaður sem yfirlag yfir moldargólf og í Alaska og Norður-Kanada var hann notaður til að þétta bjálkakofa. Hann inniheldur bakteríudrepandi efni [1]

Tildurmosi er algeng mosategund á Íslandi. Þar sem hann vex víða í breiðum og myndar afmarkaða árssprota er hann mjög heppilegur til mælinga á þungmálmum.[2][3] og mengunarmælinga [4].


Tilvísanir

  1. Kimb, S. H. et al. (2007) "Antibacterial activities of some mosses including Hylocomium splendens from South Western British Columbia" Institute for Aboriginal Health/Sciencedirect.com.
  2. Þungmálmar í mosa - Náttúrufræðistofnun Íslands
  3. Sigurður H. Magnússon (2013). Þungamálmar og brennisteinn í mosa á Íslandi 1990-2010: áhrif iðjuvera (unnið fyrir Rio Tinto Alcan á Íslandi hf., Norðurál ehf., Elkem Ísland ehf. og Alcoa Fjarðaál). Skýrsla nr. NÍ-13003. Garðabær: Náttúrufræðistofnun Íslands. ISSN 1670-0120
  4. Mosadauði í grennd gufuaflsvirkjana

license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Tildurmosi: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Tildurmosi fræðiheiti (Hylocomium splendens) er fjölær mosi sem vex á norðlægum slóðum nálægt heimskautasvæðum, oftast í þurru mólendi, kjarri og skógarbotnum. Hann er olífugrænn, gulleitur eða rauðleitur með rauðleitum stilk og greinum. Hann myndar tví- til þrífjaðraða sprota og vaxa nýir sprotar upp frá miðjum eldri sprotum. Þetta vaxtaform lætur mosann líkjast fjöðrum og gerir mosanum kleift að vaxa yfir aðra mosa og jarðveg.

Tildurmosi er notaður við blómaskreytingar og til að fóðra box til að flytja í grænmeti og ávexti. Hann var áður notaður sem yfirlag yfir moldargólf og í Alaska og Norður-Kanada var hann notaður til að þétta bjálkakofa. Hann inniheldur bakteríudrepandi efni

Tildurmosi er algeng mosategund á Íslandi. Þar sem hann vex víða í breiðum og myndar afmarkaða árssprota er hann mjög heppilegur til mælinga á þungmálmum. og mengunarmælinga .


license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS