dcsimg

Söngtifur ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Söngtifur (eða trjásöngvur [1]) (fræðiheiti: Cicadidae) eru skordýr af ættbálki skortítna, nafn þeirra er dregið af háværu tísti sem karldýrið gefur frá sér með sérstöku líffæri neðan á afturbolnum.

Einkenni

Einkennandi við söngtifur er æviferill þeirra. Einstaklingar eyða aðeins hluta lífs síns á yfirborði jarðar og þá rétt svo til að þroskast, makast og koma eggjunum fyrir, oftast á trjágrein og þetta tekur aðeins nokkra daga upp til nokkra vikna. Þegar eggin klekjast út detta gyðlurnar niður og grafa sig niður í jarðveginn þar sem þau dvelja í nokkur ár, allt frá 2 upp í 17 ár (mismunandi eftir undirættum) og nærast á jarðveginum þangað til það er kominn tími til að grafa sig upp á yfirborðið og endurtaka leikinn.

Tilvísanir

  1. Beygingarlýsing íslensks nútímamáls
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Wikilífverur eru með efni sem tengist
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Söngtifur: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Söngtifur (eða trjásöngvur ) (fræðiheiti: Cicadidae) eru skordýr af ættbálki skortítna, nafn þeirra er dregið af háværu tísti sem karldýrið gefur frá sér með sérstöku líffæri neðan á afturbolnum.

license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS