dcsimg
Image of chihuahua pine
Creatures » » Plants » » Gymnosperms » » Pines »

Chihuahua Pine

Pinus leiophylla Schiede ex Schltdl. & Cham.

Pinus leiophylla ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Pinus leiophylla [4][5][6][6] furutegund sem vex aðallega í Mexíkó, með minniháttar útbreiðslu í Bandaríkjunum (suðaustur Arizona og suðvestur New Mexico). Í Mexíkó er útbreiðslan eftir Sierra Madre Occidental og Sierra Madre del Sur frá Chihuahua til Oaxaca, á milli 1600 og 3000 m hæðar. Hún þarf 600 til 1000 mm úrkomu á ári, aðallega á sumrin. Hún þolir frost að vetrum.

Lýsing

Pinus leiophylla verður 20 til 30 m há með stofnþvermál að 23 til 80 sm. Barrnálarnar eru þrjár til fimm saman, 5 til 10 sm langar (sjaldan 15 sm langar), og gljáandi skærgrænar til gulgrænar. Könglarnir eru egglaga, 4 til 7 sm langir (sjaldan að 8 sm) á 1 til 2 sm löngum stilk; Þeir eru óvenju lengi að þroskast: 30 til 32 mánuði, eða ári lengur en flestar aðrar furur. Börkurinn er grábrúnn og sprunginn.

Undirtegundir

Það eru tvær undirtegundir (sem eru taldar af sumum grasafræðingum vera sjálfstæðar tegundir, af enn öðrum afbrigði):

  • Pinus leiophylla subsp. leiophylla. Barrnálarnar grannar (0,5–0,9 mm), fimm saman. Hún vex í suðurhluta svæðisins, frá Oaxaca til Durango, er ekki frostþolin, og vex þar sem er tiltölulega mikil úrkoma.
  • Pinus leiophylla subsp. chihuahuana. Barrnálarnar gildari (0,9–1,3 mm), þrjár saman. Hún vex á norðurhluta svæðisins, frá Durango til Arizona, þolir frost niður í -10 °C til -15 °C, og mjög þurrt loftslag. Munurinn á nálunum er aðlögun að erfiðari skylirðum. Samnefni: Pinus chihuahuana, Pinus leiophylla var. chihuahuana.[7]

Búsvæði og vistfræði

Þessi tegund vex oft með öðrum furum og eini, í Arizona oftast með P. engelmannii og Juniperus deppeana, en vex einnig í hreinum lundum eða skógum. Búsvæðinu hættir við villieldum, og tegundin er með eiginleika sem nýtast henni vel til að þola það; ef krónan eyðileggst í eldi getur bolurinn, sem er varinn með þykkum berki, myndað nýjar greinar sem nýja krónu. Einu aðrar furutegundirnar sem geta þetta eru bikfura (P. rigida) og Kanaríeyjafura (P. canariensis). Þar sem engin þessara tegunda er sérstakleg skyld hinum hefur þessi eiginleiki komið fram sjálfstætt hjá hverri, dæmi um samleitna þróun.

Ræktun og nytjar

Viður Pinus leiophylla er harður, þéttur og sterkur. Hann er notaður í byggingar, eldivið og þverbitar lestarspora. Í Suður-Afríku og Ástralíu (Queensland) er mikið plantað af tegundinni. Henni er einnig plantað í Kenía, Malaví, Simbabve og Sambía hátt yfir sjó.

Tilvísanir

  1. Farjon, A. (2013). Pinus leiophylla. The IUCN Red List of Threatened Species. IUCN. 2013: e.T42376A2976226. doi:10.2305/IUCN.UK.2013-1.RLTS.T42376A2976226.en. Sótt 13. desember 2017.
  2. World Checklist of Selected Plant Families (11 april de 2013). Pinus leiophylla.
  3. Pinus leiophylla en PlantList
  4. "Pinus leiophylla". Natural Resources Conservation Service PLANTS Database. USDA.
  5. Pinus leiophylla was originally described and published in Linnaea 6:354. 1831. Snið:GRIN
  6. 6,0 6,1 Michel H. Porcher (1995–2020). „Sorting Pinus names“. Multilingual Multiscript Plant Name Database. Sótt February 10, 2012.
  7. Moore, Gerry; Kershner, Bruce; Craig Tufts; Daniel Mathews; Gil Nelson; Spellenberg, Richard; Thieret, John W.; Terry Purinton; Block, Andrew (2008). National Wildlife Federation Field Guide to Trees of North America. New York: Sterling. bls. 90. ISBN 1-4027-3875-7.

license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Pinus leiophylla: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Pinus leiophylla furutegund sem vex aðallega í Mexíkó, með minniháttar útbreiðslu í Bandaríkjunum (suðaustur Arizona og suðvestur New Mexico). Í Mexíkó er útbreiðslan eftir Sierra Madre Occidental og Sierra Madre del Sur frá Chihuahua til Oaxaca, á milli 1600 og 3000 m hæðar. Hún þarf 600 til 1000 mm úrkomu á ári, aðallega á sumrin. Hún þolir frost að vetrum.

license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS