Juniperus phoenicea, Fönikíu einir eða Arâr,[1] er einitegund sem finnst um Miðjarðarhafssvæðið, frá Marokkó og Portúgal austur til Ítalíu, Tyrklands og Egyptalands, suður í fjöllum Líbanon, Israel, Jórdaníu og vestur SádiArabíu nálægt Rauðahafi, og einnig á Madeira og Kanaríeyjum. Hann vex á láglendi við ströndina, en nær 2400m yfir sjávarmáli á suðurhluta svæðis síns í Atlasfjöllum. Hann er táknjurt eyjarinnar El Hierro.[2]
Juniperus phoenicea er stór runni eða lítið tré sem nær 2 til 12 m. hæð, með stofn að 1m þvermáli og hringlaga eða óreglulega krónu. Nálarnar eru tvennskonar; ungstigs nálar 8 til 10mm langar á fræplöntum, og fullorðinsstigs nálar hreisturlíkar 0,5 til 2mm langar á eldri plöntum; þær eru þrjár saman í hvirfingu. Hann er aðallega með einbýli, en stöku plöntur geta verið með tvíbýli. Berkönglarnir eru 6 til 14mm í þvermál, gulbrúnir, stöku sinnum með bleikleita vaxhúð, og með 3 til 8 fræ; þeir þroskast á 18 mánuðum. Reklarnir eru 2 til 4mm langir, og fella frjóið snemma að vori.
Það eru tvö afbrigði, talin undirtegundir af sumum höfundum:
The tree's essential oil eru sérstaklega ríkar af tricyclic sesquiterpene thujopsene; kjarnviðurinn inniheldur allt að (áætlað) 2.2% af þessu hydrocarbon. Lífefnafræðingurinn Jarl Runeburg sagði 1960 að "Juniperus phoenicea virðist vera hentugasta uppspretta thujopsene hingað til."[3]
Juniperus phoenicea, Fönikíu einir eða Arâr, er einitegund sem finnst um Miðjarðarhafssvæðið, frá Marokkó og Portúgal austur til Ítalíu, Tyrklands og Egyptalands, suður í fjöllum Líbanon, Israel, Jórdaníu og vestur SádiArabíu nálægt Rauðahafi, og einnig á Madeira og Kanaríeyjum. Hann vex á láglendi við ströndina, en nær 2400m yfir sjávarmáli á suðurhluta svæðis síns í Atlasfjöllum. Hann er táknjurt eyjarinnar El Hierro.