Steindepla (fræðiheiti: Veronica fruticans) er depla af græðisúruætt. Hún ber dökkblá blóm og vex í giljum, melum, móum og klettum.
Blómin eru 1 sm í þvermál og eru fá blóm í hverjum klasa. Krónublöðin eru 4, samvaxin að neðan og misstór. Þau eru dökkblá að lit, með hvítu neðst og rauðu belti. Í hverju blómi eru tveir fræflar með hvíta frjóhnappa, frævan hefur langan stíl.
Blöð steindeplu eru oddbaugótt með stuttum randhárum. Platan nær 6 til 8 sentímetra hæð.
Steindepla (fræðiheiti: Veronica fruticans) er depla af græðisúruætt. Hún ber dökkblá blóm og vex í giljum, melum, móum og klettum.