dcsimg
Image of Schwerdtfeger's Pine
Creatures » » Plants » » Gymnosperms » » Pines »

Schwerdtfeger's Pine

Pinus tecunumanii Eguiluz & J. P. Perry

Pinus tecunumanii ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Pinus tecunumanii[2] er stórvaxin trjátegund ættuð frá Mexíkó og Mið-Ameríku.[3] Hún vex á hálendi í Chiapas og Oaxaca yfir í Gvatemala, Belís, El Salvador, Hondúras til norðvestur Níkaragva (17° til 14° N). Hún er í tvemur aðskildum stofnum á útbreiðslusvæðinu. Hálendisstofninn vex í 1500–2900 m hæð og láglendisstofninn í 500–1500 m.

Hún verður 50 til 55 m há og 120 til 140 sm í þvermál.[4] Hún hefur verið ræktuð á nokkrum heittempruðum svæðum til framleiðslu á pappírsmassa. Ræktunartilraunir hafa sýnt að hálendisstofninn er afkastamestur. Tegundin vex vel í Kólumbía, Venesúela, Brasilíu og Suður-Afríku.

Áður flokkuð sem undirtegund af Pinus patula, en DNA greining hefur sýnt að þetta er aðskilin tegund sem er í raun skyldari Pinus oocarpa. Fræðiheitið er til heiðurs Tecun Uman, innfædds höfðingja (í þar sem nú er Gvatemala) sem barðist á móti spánskum konquistadorum.[5]


Tilvísanir

  1. Farjon, A. (2013). Pinus tecunumanii. The IUCN Red List of Threatened Species. IUCN. 2013: e.T35764A2860526. doi:10.2305/IUCN.UK.2013-1.RLTS.T35764A2860526.en. Sótt 10. nóvember 2017.
  2. Eguiluz & J. P. Perry, 1983 In: Revista Ci. Forest. 8: 4.
  3. „Pinus tecunumanii“. IUCN Red List of Threatened Species. Version 2010.4. International Union for Conservation of Nature. 1998. Sótt 28. apríl 2011.
  4. James E. Eckenwalder: Conifers of the World, bls. 484–485
  5. Aljos Farjon: A Handbook of the World's Conifers, bindi 2, bls. 740
  • Dvorak, W. S., G. R. Hodge, E. A. Gutiérrez, L. F. Osorio, F. S. Malan and T. K. Stanger. 2000. Pinus tecunumanii. In: Conservation and Testing of Tropical and Subtropical Forest Species by the CAMCORE Cooperative. College of Natural Resources, NCSU. Raleigh, NC. USA. pp: 188-209.

license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Pinus tecunumanii: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Pinus tecunumanii er stórvaxin trjátegund ættuð frá Mexíkó og Mið-Ameríku. Hún vex á hálendi í Chiapas og Oaxaca yfir í Gvatemala, Belís, El Salvador, Hondúras til norðvestur Níkaragva (17° til 14° N). Hún er í tvemur aðskildum stofnum á útbreiðslusvæðinu. Hálendisstofninn vex í 1500–2900 m hæð og láglendisstofninn í 500–1500 m.

Hún verður 50 til 55 m há og 120 til 140 sm í þvermál. Hún hefur verið ræktuð á nokkrum heittempruðum svæðum til framleiðslu á pappírsmassa. Ræktunartilraunir hafa sýnt að hálendisstofninn er afkastamestur. Tegundin vex vel í Kólumbía, Venesúela, Brasilíu og Suður-Afríku.

Áður flokkuð sem undirtegund af Pinus patula, en DNA greining hefur sýnt að þetta er aðskilin tegund sem er í raun skyldari Pinus oocarpa. Fræðiheitið er til heiðurs Tecun Uman, innfædds höfðingja (í þar sem nú er Gvatemala) sem barðist á móti spánskum konquistadorum.


license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS