dcsimg

Gulstör ( Islandês )

fornecido por wikipedia IS

Gulstör, græna eða bleikja (fræðiheiti: Carex lyngbyei) er stör sem vex víða á Vesturströnd Norður-Ameríku, frá Alaska til Kaliforníu, en einnig á Grænlandi, í Færeyjum og á Íslandi. Gulstör vex víða í votum mýrum, flóum, síkjum, á grynningum í vötnum og jafnvel í ísöltu vatni. Gulstörin er stórvaxin og blaðmikil. Hún er græn eða gulgræn planta með renglum. Blöð hennar eru breið og flöt. Karlöxin eru eitt eða fleiri en kvenöxin tvö, þrjú eða fleiri og hanga á löngum leggjum. Stoðblaðið á gulstör nær upp að toppaxinu. Axhlífar eru móleitar og nokkuð lengri en hulstrin.

Gulstör er góð og lystug fóðurjurt og er ein algengasta tegundin á starengjum Íslands. Gulstörin er einnig kölluð græna eða bleikja en nöfnin eru dregin af lit hennar.

Tilvísanir

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Wikilífverur eru með efni sem tengist
 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
licença
cc-by-sa-3.0
direitos autorais
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visite a fonte
site do parceiro
wikipedia IS

Gulstör: Brief Summary ( Islandês )